Bloggari með meiru ;)
Mestu dúllurnar
04.09.2006 18:54:59 / valgy

Ætla að hætta með þessa síðu

úfff frekar ömurleg síða.... alveg spurning hvort að maður fari ekki bara að hætta með hana... þegar ég er búin að skrifa í vefdagbókina hjá Hafdísi Unu þá finnst mér ég ekkert hafa að segja hér :) og nenni eiginlega ekki að skrifa það sama hérna... þannig að ég held að ég fari að hætta hér. Svo er það líka síðan hjá hverogirls... reyna bara frekar að henda inn einni og einni færslu þangað inn og halda henni á lífi... þannig að ef að þið sem komið hingað inn og ekki inn á hverogirls.... endilega kíkið bara þangað til að fylgjast með. www.blog.central.is/hverogirls  svo er Hafdís Una náttl með sína síðu en hún er læst en bara að senda mail ef að ykkur langar að kíkja á hana :lol:

Annars bið ég bara að heilsa ykkur.
Kv Valgý

» 0 hafa sagt sína skoðun

04.09.2006 18:54:36 / valgy

Ætla að hætta með þessa síðu

úfff frekar ömurleg síða.... alveg spurning hvort að maður fari ekki bara að hætta með hana... þegar ég er búin að skrifa í vefdagbókina hjá Hafdísi Unu þá finnst mér ég ekkert hafa að segja hér :) og nenni eiginlega ekki að skrifa það sama hérna... þannig að ég held að ég fari að hætta hér. Svo er það líka síðan hjá hverogirls... reyna bara frekar að henda inn einni og einni færslu þangað inn og halda henni á lífi... þannig að ef að þið sem komið hingað inn og ekki inn á hverogirls.... endilega kíkið bara þangað til að fylgjast með. www.blog.central.is/hverogirls  svo er Hafdís Una náttl með sína síðu en hún er læst en bara að senda mail ef að ykkur langar að kíkja á hana :lol:

Annars bið ég bara að heilsa ykkur.
Kv Valgý

» 0 hafa sagt sína skoðun

07.08.2006 17:30:59 / valgy

Smá fréttir svona

Já ákvað að henda inn smá fréttum hérna þar sem að litlan er að horfa á sjónvarpið með pabba sínum :)
Allavega þá er komin prinsessa á heimilið okkar og gekk fæðingin bara vel... tók góða tíma en hverrar mínútu virði þegar að litla gullið er sett í fangið á manni.
Við erum bara heima þessa dagana að knúsast og kyssast og kynnast hvort öðru.... algjörlega yndislegt líf :haha:

Ætla nú bara að hafa þetta stutt núna og kem vonandi fljótt aftur með fréttir... það er náttl brjálað að gera hjá mannig þessa dagana við að dást að dísinni :haha: en ef ég get slitið mig frá henni þá lofa ég að henda inn fréttum.

Luv þangað til næst
Mamman :lol:

» 2 hafa sagt sína skoðun

22.07.2006 13:17:33 / valgy

Ekkert að gerast....

Nei það bara gerist ekki neitt.... Er komin 2 daga yfir settan dag :S á bara 10 daga eftir til að ná Tinnu :o en vonandi fer þetta nú að láta sjá sig. Stóri bróðirinn er líka orðinn ansi óþolinmóður... farinn að hringja á hverjum degi til að ath hvort að það sé ekkert að gerast.... hann ætlar að koma um leið og krílið ákveður að láta sjá sig ( krílið farið að stjórna ansi miklu strax :lol: )
Annars er nú bara lítið að frétta.... Jú við fórum út að borða á fimmtudagskvöldið, fórum að Carpe Diem og það var alveg rosalega gott. Birkir fékk sér reyktan lunda í forrétt og lambasteik í aðalrétt og ég rækjukokteil í forrétt og kjúklingabringu í aðalrétt.... ég hef aldrei fengið svona mjúkan kjúlla.... hann bráðnaði upp í manni....mmm. Vorum gjörsamlega afvelta eftir þetta. Komum nú samt við í 10-11 og keyptum ís og kíktum á Hörpu og Atla með eftirréttinn ;) svo var bara brunað heim og haft það kósý.

Annars er bara allt það sama..... geri lítið þessa dagana annað enn að bíða... þannig að ef að þið eruð með einhver sniðug ráð þá eru þau VEL þegin :haha:

Þangað til næst.

» 8 hafa sagt sína skoðun

17.07.2006 20:19:58 / valgy

daddara

  Áttum yndislegan dag í gær.... byrjuðum á að fá þær dásamlegu fréttir að Tinna og Stebbi hefðu loksins fengið prinsinn sinn í fangið :) INNILEGA TIL HAMINGJU MEÐ HANN... og varð ég náttl ferlega óþolinmóð og kíkti á þau kl 6. Hann er algjör gullmoli... fékk að hnoðast aðeins með hann ( svona aðeins til að reyna að koma mínu út):) en því liggur greinilega ekkert á :haha:

En allavega þá ákvaðum við að taka sunnudagsbíltúr og varð krísuvíkurleiðin fyrir valinu (spilaði kannski soldið inn í að hann er ómalbikaður..... semsagt HOLÓTTUR :lol: ) en þetta er samt alveg æðisleg leið... hef aldrei farið hana áður... Byrjuðum á því að stoppa á T-bæ, sem er svona lítið kaffihús í selvognum... fengum okkur pönnsu og kaffi þar.... og héldum svo áfram.... landslagið þarna er alveg geggjað..... og svo enduðum við í Hafnarf og kíktum á Ómar og Árný.... á nýja húsið þeirra.... rosa flott hjá þeim og verður gaman að kíkja aftur á þau þegar að þau flytja inn og allt er orðið reddí.
Svo var bara dólað sér heim aftur.... fórum nú bara heiðina heim... og enduðum í kaffi niðri í hjólhýsi ( og auðvitað var labbað niður eftir) svo um hálf 9 var svo grillað heima hjá tengdó. Yndislegur dagur alveg hreint.

Það styttist í settan dag hjá krílinu... en ætli það sé ekki hollast að reikna með því að ganga eitthvað lengur.... vona samt að ég þurfi ekki að bíða í 12 daga eins og Tinna.... en ef að það fer þannig þá kemur krílið 1.ágúst ( Valdimar bróðir liggur á bæn að það komi þá... á afmælisdeginum hans) en vona að það verði voða gott við okkur spenntu foreldrana og komi bara í kringum settan dag :haha:

Já svo varð hún Bella mín loksins frú á laugardaginn :) Innilega til hamingju með daginn Berlind og Atli. Hlakka ekkert smá til að sjá myndir.... verðið að kíkja um leið og þið komið heim úr brúðkaupsferðinni ykkar :)

Annars er bara allt reddí á þessum bæ... búið að finna til oní tösku til að taka með á spítalann... bæði fyrir mig og krílið.... Það er ferlega erfitt að bíða svona... sérstaklega þar sem að ALLIR eru á ferðalögum og út og suður eða að vinna... Hún Sif mín ætlar að vera voða góð og kíkja í heimsókn á morgun með prinsinn sinn hann Andra Thor... það verður voða gaman að fá þau og knúsast með prinsinn.

Jæja nú er þetta nú bara orðið eitthvað röfl.... kem með nýjar fréttir um leið og eitthvað spennandi gerist :)

Luv sú spenntasta og sú óþolinmóða :haha:


» 3 hafa sagt sína skoðun

29.06.2006 10:15:26 / valgy

Útilega um helgina ;)

Já þá er barasta eina útilegan í sumar að skella á ;) og ég er sko orðin mega spennt.
Er semsagt að fara á ættarmót í föðurfjölskyldunni. Mótið verður haldið í syðra langholti (minnir mig :lol: )  og er búið að gera heljarinnar dagskrá. Ég Bogga, Hemmi, Óðinn, Díana, og Jói erum í kvöldvökunefnd... hhhmmm verður spennandi að sjá hvernig okkur tekst það ;) er held ég búin að tala 2 við boggu í símann og svona uuuu eigum við að hafa þennan leik.....mmmm já hann er ágætur 8| hehe en þetta hlýtur að reddast. En ef að þið eruð með hugmyndir um góða leiki þá er það VEL... ja´MJÖG VEL þegið... plííííssss

Annars er bara það sama að frétta... framkvæmdirnar hérna heima eru alveg að verða búnar... Birkir málaði barnaherbergið í gærkveldi þannig að ég get byrjað að dunda mér að raða inni í það í dag... ooo bara gaman. Borðplöturnar í þvottarhúsið komu í gær þannig að þá er það bara eiginlega tilbúið.... svo verður bara fjárfest í einu st þurkara eftir helgi ;) já maður verður nú að hafa þetta alvuru fyrst að maður er að þessu á annað borð :haha:

Þannig að eftir helgi verður allt sett á fullt að þvo og þvo barnaföt og brjóta saman ofaní kommoðu og þá má krílið barasta koma :lol: finnst ótrúlega skrítið að það sé barasta að koma að þessu..... er komin 37 vikur..... krílið hætt að vera fyrirburi og má því bara fara að koma.... iii ein að farast úr spenningi :haha: :haha: :haha:  Það væri ekki leiðinlegt ef að ég og Tinna myndum bara liggja saman.... ég er allavega farin að bíða all verulega eftir smsi af þeim bænum... Hríðarstraumar til þín Tinna mín... prinsinn hlýtur að fara að láta sjá sig..... ooo hvað ég hlakka til.

Jæja ætla að fara að dunda mér við að raða inn í barnaherbergið ( allt dótið er nefnilega út um allan gang, vagninn, vaggan, bílstóllinn, rimlarúmið og fatapokar )

Já gleymdi... hún Trine (sem var auper hjá mömmu þegar krakkarnir voru litlir) er að koma til landsins með alla sína fjölskyldu, þau eru orðin 5. Þau ætla að vera hjá mömmu og þeim í 2 vikur... það væri nú ekki leiðinlegt ef maður færi af stað áður en hún fer heim.... bara svona fyrir hana :)

Hef það ekki lengra í bili..... hafið það barasta rosa gott um helgina öll sömul og ROSA góða skemmtun Viffi á færeyskumdögum....veit að okkar veðrur sárt saknað en við mætum næst :)
Luv frá þeirri sem er orðin FREKAR spennt að fá krílið sitt

» 1 hafa sagt sína skoðun

22.06.2006 20:57:39 / valgy

Á fullu að undirbúa :)

Jamm það er sko allt á fullu á þessu heimili. Birkir er búinn að vera þvílíkt duglegur og er þvottarhúsið mitt barasta nánst tilbúið, og tölvuherbergið líka ;) hann var að klára að mála seinni umferðina yfir gólfið og um leið og það er þornað er hægt að fara að raða inn í bæði herbergin. Ég skellti mér í borgina í dag og verslaði hitt og þetta fyrir litla krílið. Keypti teppi, handklæði með hettu, 2 rúmfatasett, lök, tvær snuddur ;) og fleira. Voða gaman að versla fyrir krílið en ég vona nú samt að ég þurfi ekki að fara margar bæjarferðir í viðbót... er algjörlega búin á því eftir svona búðaráp. Já keypti líka hornskrifborð og kommoðu inn í nýja tölvuherbergið.

Bogga hringdi í dag og tilkynnti mér það að við hefðum verið skipaðar í kvöldvöku skemmtinefnd ásamt fleirum á ættarmótinu sem er þarnæstu helgi ( 30-2 júlí) þannig að ef að þið eruð með uppástungur fyrir skemmtilega leiki þá eru þær VEL þegnar....

Jæja ætla að fara að reyna að gera eitthvað gagn hérna heima... laga til og eitthvað skemmtilegt...

Þangað til næst
Luv

» 0 hafa sagt sína skoðun

12.06.2006 16:15:24 / valgy

Málari með meiru :)

Jamm er búin að vera að mála þvottarhúsið mitt í dag... eða bera á það einhvern vatnsheldan grunn.... voða gaman að geta gert eitthvað gagn. Orðin soldið pirruð á að geta ekkert gert nema rifist og skammast yfir því sem er ekki gert :S Hélt ég myndi verða þreytt í bakinu eða eitthvað við að mála... ætlaði fyrst bara að mála pensla vinnuna... en er bara búin að rúlla og alles og gekk bara svona glimrandi ;) Það verður sko þvílíkur munur þegar að þetta verður búið... þvílíkt pláss fyrir þvott og annað... já og auðvitað saumavélina mína líka :D jamm ég ætla að hafa saumaborð þarna inni líka.... maður verður náttl að hafa almennilega aðstöðu fyrir það :lol:

En hvað er málið með rigninguna.... er nú ALGJÖRLEGA komin með nó af henni... maður verður eitthvað svo latur og nennir ENGU þegar að það er svona mikil rigning... það er bara eins og það sé hellt úr fötu og þetta er örugglega 10 dagurinn í röð sem að það rignir. Ég bíð allavega spennt eftir þurki þannig að ég geti farið og planntað sumarblómunum mínum. Náði að setja í eitt ker um daginn þegar að það hékk þurt í klukkutíma eða svo.

Já alveg rétt..... Ásdís, ef að þú lest þetta var ég að spá hvort að þú getir nokkuð sagt mér betur frá þessu leyfi sem að ég þarf að sækja um frá skólanum.... er búin að hringja einu sinni og var mér þá bennt á að tala við Sigrúnu og ég sendi henni mail og hef eiginlega bara ekki fengið nein svör frá henni.... allavega ekki svör sem segja mér neitt hvernig ég eigi að snúa mér í þessu eða hvernig þetta virkar. Hún bennti mér bara á að ath rétt minn sem námsmaður hjá tr. Veit að ég á bara rétt á námsstyrk sem má ekki skipta neitt niður þannig að maður fær bara greiðslur í 6 mán. Fæ ég þá bara leyfi frá skólanum í 6 mán??? ÉG ætla að taka mér árs frí.... stefni að því allavega... ætla svona að sjá hvernig staðan verður um áramót hvort að ég byrji eitthvað í fjarnámi... eða þannig... taka kannski tvo áfanga.  Ferlega flókið eitthvað.

Annars er bara voða lítið að frétta þannig... það bara styttist og styttist í komu krílisins... og spennan eykst með hverjum deginum..... Finnst samt svo ótrúlegt að ég sé komin svona langt og þetta fari að verða búið að þetta muni enda með því að ég fái lítið barn í fangið.... og það mitt barn. Á sennilega ekki eftir að átta mig almennilega á því fyrr en það gerist:) en udnirbúningurinn er allavega á fullu... held að ég sé að verða búin að kaupa svona flest sem þarf að kaupa á það svona fyrstu vikurnar....

Jæja ætla að fara að hringja upp á verkstæði og ath með bílinn minn... fór með hann í morgun í eitthvað tékk og er því búin að vera bíllaus í allan dag..... ætla að ath hvort að þeir fari ekki að verða búnir.... þarf svo að komast upp í búð og svona.... skelfilegt að vera svona bíllaus.... sérstaklega þar sem að ég treysti mér ekki legnur til að labba upp í hveró.... brekkan soldið erfið orðin. EN bíð spennt eftir að fara að labba... eða öllu heldur strunsa hana aftur og þá með vagninn með mér.... sem ég fæ vonandi í hús í kvöld :haha:

segjum þetta bara gott í bili.
Luv kasólétti málarinn :lol:

» 5 hafa sagt sína skoðun

05.06.2006 10:47:29 / valgy

Köku át = enginn svegfn :(

Hvar er sumarið sem ég hélt að væri komið.... :( ætli sumarið verði svona... sól í 2 daga og rigning í 7 8| ooo ætla rétt að vona að það fari nú að koma almennilegt veður þannig að maður geti legið í sundinu og spókað sig og fengið aðeins fleiri freknur :lol:

Var voða myndó í gær.... skellti í eina skúffuköku og bjó til rækjusalat og bauð Hörpu og co í kaffi. Þannig að það var setið að úðað í sig á meðan krakkarnir léku sér... svo var farið í smá stund út og svo brunaði stórfjölskyldan í bæinn og við fórum að hafa okkur til í fermingarveislu um kvöldið.... Baldur Freyr var að fermast og kíktum við í kaffi um kvöldið. mmmm og þar var sko allt fljótandi í veitingum og þar sem ég hef engar hömlur þessa dagana var náttl haldið áfram að úða í sig þar... en ég fékk bara að kenna á því í nótt.... Ef að ég borða svona mikinn sykur þá get ég ekki sofið á nóttinni. Var á brölti í alla nótt. Fórum að sofa rúml 12, ég var komin fram kl 3, svo kl 5 og kl hálf 7 þá gafst ég upp og settist bara fram í nýja stólinn minn og lá þar til hálf 9 :S Þannig að það verður sko ENGINN sykur í dag.... verð barasta að taka hann alveg úr.... huhhuuummm ekki alveg það léttasta sem ég geri, kökur og sætabrauð það besta sem ég veit. En það verður þá bara að vera harkan 6.

Oooo hvað maður er nú að verða óþolinmóður eftir þessu litla kríli sínu þegar það er farið að tínast svona úr hópnum. Sif búin, Rakel búin og svo styttist óðum í Tinnu. Og svo kemur loksins að mér :haha:

Jæææjjja ætla að skella mér í skó og úlpu og taka léttan göngutúr.... er alveg ónýt þegar að sundlaugin er lokuð.... Fór á lau og tók nokkrar ferðir en svo var lokað í gær og í dag og ekkert sund í kvöld :( þannig að þá verður maður bara að skella sér í göngutúr og svo kannski bara í pottinn hérna heima ;)

Já og svo er sónar á morgun..... get sko ekki beðið eftir að fá að sjá krílið mitt.

Bið að heilsa í bili.
Luv Valgý

» 2 hafa sagt sína skoðun

30.05.2006 10:04:53 / valgy

Pappabrúðakup ;)

Já þó ótrúlegt megi virðast þá áttum við 1 árs brúðkaupsafmæli á sunnudaginn... tíminn flýgur gjörsamlega áfram... finnst eins og ég hafi verið á fullu að undirbúa brúðkaupið fyrir nokkrum vikum :D  Enda er sagt að það sem er skemmtilegt líði hratt :lol:
Helgin var auðvita tekin með stæl. Á föstudagskv var farið út að borða á red chilli með saumóskvísum og nokkrum mökum, þar átu allir á sig gat. Svo var brunað í borgaleikhúsið á leikritið Fullkomið brúðkaup.... sem ég mæli HIKLAUST með... ferlega skemmtilegt leikrit og leikararnir fara algjörlega á kostum. Sýningin byrjaði kl 22:30 þannig að við vorum ekki að koma heim fyrr en að ganga 2. Skutluðum Boggu og Gísla á snúlla en við gömlu hjónin :haha: drifum okkur heim að sofa.... ;) enda langur dagur framundan. Á laug var vaknað fyrir 9 og fundið sig til, brunað í höfnina að kjósa rétt ;) Vorum svo komin fyrir utan Nordica spa um hálf 12. Þar fórum við í klukkutíma nudd...mmmmm ekkert smá notó, svo var hoppað í pottana og þar fengum við aðeins meira nudd :haha: það fá allir sem fara í pottana herðanudd og auðvita þáðum við það með þökkum þrátt fyrir að vera ný búin í kl tíma nuddi ;) Eftir afslöppun í pottinum var komin tími til að fara uppúr... allavega fyrir mig :) Birkir sat aðeins legnur og prufaði gufurnar og svona... ég átti náttl eftir að blása og slétta og punnt mig því að leiðin lá til hans Hemma frænda. Hann tók nokkrar bumbumyndir af mér og svo myndir af okkur hjónakornum, hlakka ekkert smá til að sjá útkomuna. Ætla að reyna að hitta hann í vikunni og kíkja á myndirnar, og velja úr og svona svo hann geti farið að vinna þær. Eftir að hafa pósað í góðan tíma skelltum við okkur á pizza hut og svo lá leiðin vestur. Á leiðini þangað sagði ég Birki hvert við værum að fara, að við myndum gista í Stykkishólmi. Við vorum komin þangað um 6 og þá var tékkað sig inn á hótelið og aðeins slappað af. Svo var tekinn rúntur og bærinn skoðaður. Rosa gaman að keyra um þennan bæ... voða fallegur. Við pönntuðum okkur borð kl 8 á narfeyrarstofu....ææ man ekki hvað staður hét nákvæmlega, en það var eitthvað í þessa átt :) þar fengum við okkur létt steiktan humar og hörpuskel....mmmmmm hvað það var gott.... Sátum þarna dágóðan tíma og spjölluðum og horfðum á fólkið... það var nefnilega rosalega mikið líf í bænum. Svo var farið upp á hótel og haft það kósý :lol:  Á sunnud var vaknað upp úr 9 og skellt sér niður í morgunmat... ætluðum svo aftur upp og leggja okkur en vorum bara eitthvað svo vel vakandi að við kúrðum í smá stund en svo var bara pakkað saman og tékka út. Ætluðum að vera FERLEGA sniðug og vekja Viffa... vorum alveg viss um að hann væri þunnur eftir kosningardjamm í ólafsvíkinni og brunuðum því þangað, en þegar við komu í víkina þá var bara enginn heima... Viffi í grafarvogi 8| Birkir hringdi í Viffa og var hann ekki alveg sáttur við okkur... sorrý Viffi minn..... var bara alveg viss um að þú værir heima afþví að þú kemur suður næstu helgi.... ;) Leiðin lá þá í Borganes og þar fengum við okkur að borða og svo var skellt sér í sund, alltaf gott að fara í sund í borganesi. Svo var bara brunað af stað heim.
Á leiðini heim kíktum við við hjá stór fjölsk í mosó og fengum að sjá nýjasta meðliminn... dúdda mía hvað hann er sætur. Við stoppuðum bara rosa stutt, bara rétt að fá að kíkja. Ætla svo að kíkja betur á þau í vikunni.
Við stoppuðum í skalla í móso og fengum okkur ís og þar voru barasta Bella og co að fá sér í svanginn áður en þau lögðu af stað heim til sín upp á Hvanneyri. Ekkert smá gaman að rekast á þau. Svo kíktum við í smá stund á Hörpu og Atla og bunuðum svo yfir heiðina. EN þegar við voum að verða komin heim og bæði orðin voða svöng nenntum við ekki að fara að elda... þannig að Hrói varð fyrir valinu.

Jæja þvílík langloka... en þetta var helgin svona í hnotskurn ;) algjörlega YNDISLEG

Svo var barasta vinna í gær, var að vinna frá 8-4 og brunaði þá í bæinn og kíkti til spákonu.... er búið langa svo rosa legni og ákvað að skella mér... var þar frá 6 til 7 og þá var brunað heim og náð í sundfötin og upp í hveró að ná í Rakel og svo í sund... Var nú ekki alveg að nenna sundinu sökum þreytu... en svo gott þegar maður er komin ofaní.

Í dag er það svo bara leti leti.... kannski að maður vígi barasta saumavélina sína ;) keypti þunnt flísefni og snið í síðustu viku þannig að ég hef enga afsökun lengur 8)

Jæja læt þetta duga í bili.
Þangað til næst
Luv Valgý

» 0 hafa sagt sína skoðun

23.05.2006 15:56:57 / valgy

Leti lífið ógurlega.....

Já þetta er búin að vera leti vika... Já nei það er víst komin ný vika :) hehe en allavega þá var síðasta vika algjör leti vika... Fór reyndar alveg 2 í bæinn og verslaði aðeins fyrir krílið. Búin að kaupa graco bílstól... rosa flottan... og fleira.
Á laug þá fórum við upp í bústað til Hörpu og Atla og borðuðum með þeim hádegismat. Vorum þar til að verða 5 og brunuðum þá heim og í búða að kaupa grill mat. Hittum þar Tinnu og Stebba og var einhver leti í köllunum að grilla í þessum kulda þannig að þeir ákváðu að sleppa grillinu og pannta einhvern mat. Fórum til Boggu og Gísla kl 6 og þá brunuðu kallarnir á Selfoss og keyptu mat á Menam. Á meðan sátum við kellurnar og kjöftuðum. Svo var borðað og horft á keppnina. Finnarnir voru nú soldið flottir.. en mér fannst Svíþjóð líka flott... ég kaus hana :) Bogga var með eitthvað snakk og nammi í skál og þar sem þetta var BEINT fyrir framan mig þá hreinlega lá ég í þessu......djööööö.... fórum svo heim bara rúmlega 10 ( já veit, frekar slapt... en þreyttu óléttu konurnar gátu ekki meira :) hehe ) svo um nóttina vaknaði ég að DREPAST í maganum... var svo ÓG flökurt....hhhuuuhhhuuummmmm semsagt búin að éta yfir mig :S á sunnud morguninn var semsagt ákveðið að fara bara í nammi bindindi fram yfir fæðingu. Má fá mér eitthvað smá einu sinni í viku en ekkert á milli og það eru alveg komnir heilir 3 dagar í þessu bindindi :) ekkert smá dugleg.... þetta er nefnilega alveg erfitt þegar að maður er bomm... löngunin verður nefnilega svo ferlega sterk ef að mér langar í eitthvað.... þá verð ég bara að fá það og það NÚNA 8| en þetta skal takast... nú er það bara þrjóskan 8) en nýjasta nýtt hjá mér er að briðja klaka... aha er með klaka framleiðslu í frystinum og er alltaf með klaka í glasi.... skrítin.

En aftur að þessu leti lífi... úfff það fera að vera komið gott... væri nú alveg til í að vera að vinna smá... bara svona hálfan daginn eða svo.... held að þessir tveir mán sem eftir eru verði ansi langir þegar að maður hangir og gerir ekki neitt.... allavega ef að einhver veit um eitthvað smá jobb þá má hann alveg láta mig vita :)

Svo er barasta komið að árs brúðkaupsafmælinu okkar næstu helgi :haha: já fljótt að líða... finnst eins og þetta hafi gerst í gær :)
En helgin verður tekin með stæl en ég segi bara frá því eftir næstu helgi því að ég er búin að skipuleggja surprise helgi fyrir Birkri... jamm bara gaman... og ég er alveg spennt... verður æði að dúllast bara tvö og hafa það kósý :)

Jæja ætla að reyna að fara að gera eitthvað....t.d  að skúra... úfff ekki veitir af.

Verðum barasta í bandi.
Luv Valgý

» 4 hafa sagt sína skoðun

16.05.2006 10:17:51 / valgy

Hún þyrnirós svar heila öld heila öld......

Það koma loksins að því....... ooooo svaf SVO ljúft í nótt og alveg til hálf 10 í morgun.....mmmmmm hvað ég var farin að þrá að sofa út :) og það var sko YNDISLEGT.

Kláraði semsagt prófin í gær.... þurfti reyndar að fara út úr prófinu.... það var bara að líða yfir mig þarna inni.... vissi ekki hvort að það myndi líða yfir mig á leiðini út eða þá að ég mydni ÆLA yfir næsta borð.... ferlega óþæginlegt.... fékk að fara út og fá mér frískt loft og reyndi svo að fara inn aftur, kláraði að svara 3 krossum sem ég átti eftir og þá fékk ég aftir svona og þá bara hætti ég og fór út. Var eiginlega búin með prófið... en þetta verður BARA að koma í ljós.... orkan og ALLIR kraftar barasta hreinlega búnir.

En svo tók líka þvílíka SÆLAN við.... fór og hitti Sif rúmlega 12 í Laugum spa og þar fékk ég mér berja boost og ferska ávexti og við sátum og spjölluðum í soldin tíma. Svo um 1 þá röltum við okkur niður og fengum sloppa og handklæði og klæddum okkur í sloppana. Ég byrjaði í nuddi og Sif í fótsnyrtingu. Þegar að ég kom inn í nuddstofuna sá ég DRAUMA bekkinn.... með gati fyrir kúluna og brjóstin....mmmmdddaaaa svo tók bara við rúmlega klukkutími af dekur nuddi... aaaa :haha: var búin í því rúmlega hálf 3... þá var rölt með mig og mér sýnd baðstofan.... fullt af gufum, pottur með sjó, veitingastaður og svo afslöppunarherbergið... það er sko ÆÐI.... bara fullt fullt af lasy boy stólum´í hring og areneldur í miðjuni. Þar komum við okkur fyrir og svo vorum við sóttar kl 3, ég í fótsnyrtingu og Sif í nudd.... Ég hef aldrei áður farið í fótsnyrtingu og þetta var sko ÆÐI... ætla ekki að reyna að lýsa því neitt frekar :D ég er náttl algjör fíkill þegar kemur að því að dekra við tásurnar mína og kálfa...mmmmmm Þaðan kom ég út kl hálf 5 og var Sif þá komin í aflsöppunarherbergið. Við röltum okkur svo inn á veitingastaðinn og fengum ökkur tortilla pönnuköku með kjúkling, grjónum, kotasælu ofl .... mmmm hvað hún var góð... enda báðar orðnar FREKAR svangar.... ég hef sko ekki heyrt garnagaul í maganum á mér síðan að ég varð ófrísk :) hehe en úfff hvað það var orðið hátt síðustu mín í fótsnyrtingunni :lol: Svo röltum við á milli gufubaðana og enduðum svo í smá slökun áður en við skelltum okkur í sturtu.
Þetta var semsagt ALGJÖRT ÆÐI... röltum svo út úr Laugum rúmlega 6 :)

Þá þurfti ég að bruna niður í skóla og prennta verkefnin mín út og henda þeim í hólfið..... og þar með var ég komin í rúmlega árs frí :) jább tók þá ákvörðun að fara bara alveg í frí frá skólanum á meðan að ég er í fæðingarorlofi. Var búin að vera að spá í að taka einn eða tvo áfanga utanskóla..... en ætla bara að njóta þess að stússast með litla krílið mitt.... er búin að bíða það lengi eftir því að mér finnst við alveg eiga það skilið að knúsast bara saman án þess að þurfa að hugsa um einhvern lærdóm :) byrja svo bara aftur á fullu þarnæsta haust.

Jæja ætla að láta þessa langloku duga og fara að halda áfram að gera EKKI NEITT :)  nema kannski pannta mér tíma í plokk og lit og skella mér kannski í sund....

Þangað til næst.
Luv Valgý sem er komin í sumarfrí :)

» 7 hafa sagt sína skoðun

12.05.2006 09:00:20 / valgy

Alveg að verða búið :)

Já nú er þetta að styttast.... sem betur fer....

Var í frekar erfiðu prófi í gær og svo er bara eitt eftir á mánud og þá er þetta BÚIÐ :haha:  Þetta er sko búin að vera ferkega löng törn eitthvað... kannski líka afþví að orkan er ekki alveg eins mikil... og hún er barasta eiginlega búin.

Fór í aðferðafræðipróf í gær kl hálf 2 og kláraði það kl korter yfir 5... gekk svona lala... er allavega mjög spennt að sjá hvað kemur út úr þvi.... var nefnilega við það að hætta við um morguninn að fara í prófið.... fannst ég ekki kunna neitt... en svo bara kom þetta ágætlega út held ég.... vona það allavega 8|
Var svo komin heim rétt fyrir 7 og ákvað að skella mér í sund... ná síðustu sólargeislunum og bara fá smá slökun.... græddi alveg 2 freknur á því :haha: Svo þegar að ég kom uppúr um 8 ákv við hjónakornin að hittast á pizza og fá okkur í svanginn.

Í gær fór ég svo aðeins upp á spítala í smá tékk og var skipað að vera heima hjá mér í dag... engin hlaða í dag. Jamm var skipað að vera heima og liggja ef að ég þyrfti að læra og þar sem að ég VERÐ að læra þá geri ég það bara hérna upp í rúmi og hef það fínnt :D

Úfff er ekki alveg að trúa því að það sé bara eitt próf eftir... farin að sjá fyrir endan á þessu LANGA ferli....úúú hvað ég er spennt að geta farið að undirbúa komu krílisins.

Eftir próf á mán er svo DEKUR með Sif s í laugum spa..... nudd og fótsnyrting :P ef að það er ekki fullkominn endir á prófatörn þá er hann ekki til... mmm verður æði...

Jæja læt þetta duga í bili... Ætla að klára lokaorðin í síðustu ritgerðinni og fara svo að lesa íslensku leiðina eftir Stefán Ólafsson 8|

Skrifa sennilega bara næst þegar að ég verð komin í SUMARFRÍ :lol:
luv bumbulínan sem er alveg að verða búin í prófum :)

» 4 hafa sagt sína skoðun

30.04.2006 09:36:20 / valgy

Ég bý í sveit... á sauðfé á beit....

Jæja þá er annar í afmæli líka búinn... og var hann algjörlega FULLKOMINN... þetta var sko yndislegur dagur.

Ég vaknaði kl 8 og fór að læra. Lærði til hálf 3 og skellti mér þá í snögga sturtu og hafði mig til. Mátaði kjólinn sem að Sigga lánaði mér ( fékk hann lánaðan fyrir ferminguna hjá Dagný) og gat svo ekki hugsað mér að fara úr honum og í SVÖRTU BUXURNAR mínar :S þannig að ég ákvað bara að vera í honum 2 daga í röð... og my GOD hvað mér fannst gaman að geta verið svona fínt... þe ekki í bévítans buxunum 8|
Gestirnir fóru að tínast inn um 3, afi var fyrstur því að hann kom með sendingu frá ömmu ( amma var nefnilega í öðru partýi ) kom með kókosbollu marens og eplaköku... mmm takk fyrir það elsku amma mín. Svo kom mamma með grjónaréttinn og hún Helga með hrískökuna :lol:  Takk öll sömul fyrir hjálpina :haha:
Svo var elskulegur kallinn minn náttl búinn að standa sig eins og HETJA og laga til, gerði rækjusalat og heitan rétt, keypti silfurlitaðar blöðrur úti í svíþjóð sem á stór 25 og blés þær upp. Ekkert smá flott hjá honum.

Svo var bara setið og spjallað og BORÐAÐ ;) mmm allt rosa gott og kláruðust allar veitingarnar... sem betur fer.... hefði ekki viljað sitja uppi með fullt af afgang og vera að narta í það alla vikuna.

Ég fékk sko FULLT af pökkum. Ég fékk, dagkrem, hreinsimjólk,  andlitsvatn og púður og busta frá Étre belle (vörurnar sem Bogga er að selja) sturtusápu, augnskugga, e.lokka,  kerti, ferlega kósý íþróttagalla ( sem ég á að nota þegar að ég kem heim af spítalanum ;) ) hann er sko ÆÐI mjúkur og góður og nærur. Ég fékk platta sem á stórð: Víðigerði Birkir Kristjánsson og Valgý Arna Eiríksdóttir.. ekkert smá flottan og verður kallinn settur í það í dag að setja hann upp :) Svo fékk ég blóm og vasa og FULLT af pening.. já var búin að segja mömmu að mig langaði að kaupa mér saumavél og hún lét það bara berast kellingin og amma og afi, Halla, Guðrún Hanna, Mamma og Pabbi gáfu mér öll pening upp í hana og verður farið strax eftir próf að finna sér fína vél :D Svo var ég náttl búin að fá úr frá Birkir og fótsnyrtingu frá krökkunum í skólanum :)

TAKK ALLIR FYRIR MIG.....

Svo þegar gestirnir voru farnir lét Birkir renna í pottinn og við skelltum okkur í hann.... mmmmddddddaaaaa það er sko ekki hægt að lísa því hvað þetta er notó að búa svona út í sveit, heyrðum ekkert nema fuglasöng og sáum hestana út á túni :haha: algjör sæla... það var líka svo geggjað verður.

Svo var bara skriðið upp í snemma og vaknað aftur snemma og er ég að stelast til að taka mér smá pásu til að borða núna og skrifa hér :)

Svo verður tekin pása aftur í dag og kíkt í smá stund í fermingu til hennar Dagnýjar

Jæja ætla að halda áfram með lærdóminn, er að læra undir ofbeldi og vanrækslu próf.. mjög spennandi og skemmtilegt.

Enn og aftur TAKK ALLIR FYRIR MIG....þið eruð öll æði

Luv Valgý

» 4 hafa sagt sína skoðun

29.04.2006 10:57:32 / valgy

Já já barasta orðin hálf fimmtug

Jamm afrekaði það í gær að verða hálf fimmtug :S :lol:
Átti alveg fínasta dag þrátt fyrir það að þurfa að eiða honum nánast öllum inn á bókhlöðu... hefði alveg viljað gera eitthvað annað, sérstaklega þar sem að það var GEGGJAÐ veður í rvk.... en það var bara ekkert val. En í hádeginu fórum við, læru grúbban mín, út að borða á salatbar Eika...mmmm ekkert smá gott.. já já maður er allur í hollustuni þessa dagana... úff búin að bæta nokkrum kílóum á mig á þessari meðgöngu.. en er líka búin að vera voða dugleg að borða holt síðustu 2 daga og svoleiðis veðrur það áfram 8) Svo var farið aftur upp á hlöðu að læra... lærði til 6 og brunaði þá í smáralindina og hitti Helguna mína þar... þurfti nefnilega að kaupa mér sokkabuxur og hrísgrjón í grjónaréttinn góða ;) og svo var brunaði svo þaðan beina leið heim og knúsa kallinn... og skelltum við okkur á rauða húsið að borða... mmm það var ekkert smá gott. VIð fengum okkur sjávaréttasúpu í forrétt og svo fékk Birkir sér eitthvað lamb í aðalrétt og ég fékk mér kjúklingasalat... og það var GEGGJAÐ gott... mæli sko með því. Svo var nú barasta brunað heim og haft það kósý... eða kúrt í sófanum í smá og svo skreið ég nú bara fljótlega upp í rúm... orkan algjörlega búin... En algjörlega YNDISLEGUR dagur og fékk ég 2 afmælisgjafir... ég fékk fótsnyrtingu frá grúbbuni og svo fékk ég rosa flott úr frá kallinum.

En svo verður annar í afmæli í dag :haha: heppin.... já ákvað að vera með smá kaffiboð í dag kl 3 fyrir þá sem vilja kíkja.... gott að hafa smá ástæðu til að leggja bækurnar til hliðar... ég geri svosem minnst fyrir þetta boð :) á svo yndislega að... kallinn er búinn að sjá um þetta allt saman og svo ætla Helgan mín bestasta, amma og mamma að koma með smá með sér :) :S huhuumm bjóða í kaffi og láta svo alla koma með eitthvað með sér... dónó... en það reyndar buðust allir til að koma með... Birkir var alveg kominn í stellingar að setja á marens köku og svona en þá var hún amma mín bara búin að því..... heppinn hann :)

Jæja verð að vera dugleg að læra þangað til.
Eigið góðan dag og hlakka til að sjá sem flesta í dag.
og Bjöggi minn til hamingu með daginn... gamli kall :)

Luv Valgý

» 2 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 5